Stuðningsyfirlýsingar
- Eva Joly
Ég er stolt af því að vera til ráðgjafar þingsályktunartillögu til að tryggja alþjóðlega vernd fyrir rannsóknarblaðamennsku. Í huga mér inniber þessi ályktun sterk skilaboð og hvatningu til eflingar heilinda og gagnsæis hjá ríkisstjórnum víðsvegar um heim, þ.á.m. á Íslandi. Í starfi mínu við rannsóknir á spillingu hef ég orðið vitni af því hve mikilvægt það er að hafa öflugt regluverk til tryggja aðgengi almennings að upplýsingum. Ísland getur með nýstárlegri sýn á samhengi tilverunnar og vegna tilhneigingar til að fara sínar eigin leiðir orðið hinn fullkomni staður til að hrinda af stað verkefni af þessu tagi sem yrði til þess að efla gagnsæi og réttlæti á heimsvísu.
- Index on Censorship, eru leiðandi bresk samtök á sviði frjálsrar fjölmiðlunar.
Samhæfing og nútímavæðing upplýsinga og málfrelsislöggjafar sem þessi ályktun felur í sér tekur á lykilatriðum varðandi tjáningarfrelsi á stafrænum tímum og gæti reynst farvegur lagalegra umbóta sem eru öllum lýðræðisþjóðfélögum nauðsynleg á 21. öldinni.
- Icelandic Digital Freedoms Society
Sú hugmynd, að ná fram frelsi í hinum stafræna heimi, verður eingöngu náð fram með sköpun sterks lagaumhverfis sem verndar þau gildi sem samfélagið okkar heldur í hávegum. Þáttaka FSFÍ í þessu verkefni er endurspeglun á þeirri vaxandi þörf.
- The Sunshine Press / Wikileaks, Wikileaks er álitið leiðandi afl þegar kemur að birtingu efnis sem oft er haldið frá almennri umræðu og varðar spillingu.
T Til að afhjúpa spillingu höfum við þurft að leggja mikið á okkur. Til að mynda höfum við þurft að dulkóða samskipti okkar, dreifa starfseminni um víða veröld og verja hærri fjárhæðum til málareksturs fyrir dómstólum en gagnaðilar okkar sem í einu tilfelli var stærsti svissneski einkabankinn. En það er ekki hægt að ætlast til að allir útgefendur og félagasamtök geti staðið undir slíku fjárhagslegu álagi. Jafnvel stórir fjölmiðlar á borð við BBC og mörg stærri dagblöð veigra sér reglulega við að birta fréttir af ótta við íþyngjandi kostnaði við málarekstur. Smærri baráttuaðilar gegn spillingu, allt frá Global Witness til TCI Journal eru hundeltir heimshorna á milli til að koma í veg fyrir þessir aðilar geti flutt fréttir eða komið upplýsingum til almennings. Það er kominn tími til að slíkum ofsóknum verði hætt. Það er kominn tími til að alþjóðasamfélagið spyrni við fótum og segi hingað og ekki lengra, sannleikurinn þarf að vega þyngra en fjárhagslegur styrkur, sagan verður að haldast varðveitt án tilrauna til að fjarlægja hana úr upplýsingasamfélaginu. Við sem stöndum að baki wikileakserum stolt af því að hafa verið til ráðgjafar við gerðþingsályktunartillögunnar, sem hér er flutt. Íslendingar virðast hafa djúpstæðan skilning á mikilvægi gagnsæis og heiðarleika eftir hrunið, það þarf hugrekki til að standa með mannréttindum og sannleikanum, það er eitthvað sem Íslendingum virðist ekki skorta.
- Róbert Marshall MP, former head of the Icelandic journalists association and parliamentarian for the Social Democratic Alliance (largest governing party).
This is a good project for political change. We have been through a difficult period and this is an initiative that can unite the whole political scene. A haven for free expression will help counter the growing practice of libel tourism. British courts in particular, have become a favoured destination for complainants seeking to take advantage of the UK's plaintiff-friendly libel laws.
- Birgitta Jónsdóttir þingflokksformaður Hreyfingarinnar
(stutt)
During the financial meltdown it became obvious that we needed fundamental changes in order to never go back down the same track. The crises sharpened our perspective on what really matters. We found out the hard way that we did not have a vibrant free press that could report without fear of those in power. If we had, perhaps some of the calamities our country now faces could have been prevented. We need to learn from our experiences and create a future for Iceland as a beacon of freedom of expression and information.
(löng)
Hrunið varð til þess að þjóðin vaknaði og þurfti að horfast í augu við að ekki var allt sem sýndist í samfélaginu okkar, en með því að taka höndum saman náðum við að koma á sögulegum breytingum. Ríkisstjórnin var þvinguð til að segja af sér, seðlabankastjórinn og stjórn fjármálaeftirlitsins voru jafnframt neydd til afsagnar. Íslendingar áttuðu sig á því að með samtakamætti gætu raunverulegar breytingar orðið að veruleika. Fólk áttaði sig á því að innviðir samfélagsins sem það hafði reitt sig á höfðu brugðist. Akademíska stéttin, ríkisstjórnin, þingheimur, Seðlabankinn og fjölmiðlar brugðust öll hlutverki sínu. Almenningur áttaði sig á því að fjölmiðlar landsins voru máttlausir, að gagnsæi skorti, að spillingin var víðtækari en menn óruðu fyrir og til þess að getað lifað í heilbrigðu samfélagi yrði almenningur að taka þátt í að móta það. Fólkið í landinu hefur áttað sig á því að það þarf að gera grundvallarbreytingar sem lúta að lýðræðisumbótum og að ný löggjöf sem byggir á gagnsæi og pólitískri ábyrgð er nauðsynleg. Vegna þess hve heimurinn er samofinn á flestum sviðum, sér í lagi þegar kemur að frjálsu flæði fjármála og upplýsinga er deginum ljósara að þær tálmanir á birtingu upplýsinga sem almenningur á rétt á að hafa aðgang að er ekki aðeins okkar vandamál, heldur hnattrænt vandamál. Réttur almennings til að skilja hvað er að gerast í samfélögum þeirra þarf að verða styrktur. Með því að setja hér bestu mögulegu löggjöf sem völ er á til að tryggja öruggt starfsumhverfi fyrir þá hugrökku blaðamenn og rithöfunda sem margir hverjir hafa misst vinnu sína við að fjalla um efni þeirra sem eitthvað hafa að fela og vilja leggja allt í sölurnar til að halda huldu, með því erum við að standa vörð um réttlæti, heiðarleika og mannréttindi.